Um Byggðasafnið

Á Byggðasafninu í Görðum gefst kostur á að kynna sér sögu Akraness og nágrennis. Safnið var stofnað og opnað á árinu 1959 og er staðsett á hinu forna höfuðbóli að Görðum á Akranesi sem var kirkjustaður og presstsetur frá öndverðri kristni til loka 19. aldar.

Byggðasafnið í Görðum býður gestum einstaka innsýn í liðna tíma en jafn heildstæð sýning er fágæt á landsvísu. Sýningar safnsins eru afar fjölbreyttar, m.a. í nokkrum húsum sem sum hafa verið flutt á svæði safnsins en á safninu eru einnig sérstakt kvikmyndarými og sýningarými fyrir skammtímasýningar. Í fastasýningu safnsins er fjallað um lífið til sjós, í landi, í vinnu og í leik. Hljóðleiðsögn er innifalin í aðgangseyri. Við safnið er jafnframt eldsmiðja en Íslenskir eldsmiðir stunda iðju sína þar og gefst gestum stundum tækifæri á að fylgjast með þeim að störfum. Heimsókn á Byggðasafnið í Görðum leikur við öll skilningarvit gesta.